Snilldartúlkun. Vona að þetta muni ekki vera lýsing á RVK næstu fjögur árin, þótt það eigi vissulega um síðustu fjögur.
Bloggar | 30.5.2010 | 11:16 (breytt kl. 11:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Íslensku timburkirkjurnar eru dálítið sér á báti í kristninni. Bæði er það af því að þær eru úr timbri en ekki steini og af því hve litlar þær eru. Þær bergmála tíma skorts og nægjusemi. Á tímum þar sem trúræknin var mikil á heimilum og húslestrar viðhafðir á kvöldin, gátu þær ekki rúmað nema hluta safnaðar. Eðlilegt var að einhverjir sóttu messu af hverjum bæ, en ekki allir. Ekki einu sinni á jólunum, eins og sumar þjóðsögurnar bera vitni um. Sumstaðar var það einnig svo, að fólk tiltekinna bæja sótti ekki kirkju nema ákveðna messudaga. Meira hér.
|
Krýsuvíkurkirkja brann í nótt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Menntun og skóli | 2.1.2010 | 12:03 (breytt kl. 12:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Í sjálfu sér ekki slæm grein, en þeir hefðu mátt láta hlekkinn á bloggið fylgja. Ekkert vandamál er hinsvegar við það að finna annál hins heppna, smáfyrirhöfn og tungumálakunnátta, Google leit og "voilá": http://www.islandreefjob.com.
|
Besta starf í heimi kostaði hann næstum lífið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Menntun og skóli | 30.12.2009 | 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrir nokkrum árum skall á kreppa í sýndarborginni minni. Ég ákvað að draga róttækt úr öllum framkvæmdum og græddi fúlgur fjár.
Fyrir nokkrum árum, áttum við eiginkona mín von á barni. Við fórum til höfuðborgarinnar til að eiga það, því að við vildum ekki að það fæddist einhvers staðar þar sem engin þjónusta var til staðar. Ég þurfti að taka af sumarleyfi mínu til að vera viðstaddur en það var nú lítið mál. Ekki var kreppa þá, en þjónustan var ekki upp á marga fiska fyrir þau sem ekki bjuggu í nágrenni við sjúkrahús þarna á landsbyggðinni. Síðan þá hefur þjónustan við dreifðar byggðir bara versnað.
Hví það? Jú, vegna þess að núll viðhald og núll uppbygging þýðir ófrávíkjanlega hrörnun, mismikil en ákveðin. Það vita allir sem leikið hafa SimCity eða hliðstæðan uppbyggingar- og stjórnkænskuleik. Já, eða hafa búið við skerta þjónustu úti á landi, jafnvel þótt engin kreppa sé.
Eflaust má safna peningum með þessu móti. En mannlífið sem blómstrar við þesskonar aðstæður annaðhvort dugar eða drepst. Já eða flytur í gettóið suður. Þar ku víst vera nóg af íbúðarhúsnæði á góðum kjörum nú.
|
Spara má með lokun fæðingardeilda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Menntun og skóli | 13.12.2009 | 08:28 (breytt kl. 08:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Menntun og skóli | 31.10.2009 | 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


Baldur Kristjánsson
Gunnar Waage
Jóhann Björnsson
Kolbrún Baldursdóttir
Kári Harðarson
Rósa Harðardóttir
Salvör Kristjana Gissurardóttir
Sunna Dóra Möller
Vésteinn Valgarðsson
veffari
Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir
Þór Sigurðsson
Baldvin Jónsson
Brosveitan - Pétur Reynisson
Eyþór Arnalds
Félag íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt
Hrannar Björn Arnarsson
Jón Þór Ólafsson
kreppukallinn
Lúðvík Júlíusson
Máni Ragnar Svansson
Þórður Björn Sigurðsson




